Sendingin þín inniheldur
Litla ljónið barnafataverslun selur litrík barnaföt úr dásamlegri, lífrænni bómull sem gleðja augað, bæði barna og fullorðinna.
Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur og stillum við sendingarkostnaði í hóf innanlands.
Pöntunum er komið á pósthús innan tveggja virkra sólarhringa. Sé valið að sækja sendingu skal það gert í Krabbastíg 1B, 600 Akureyri samkvæmt samkomulagi.
Í kjölfar kaupa færðu senda kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Litla ljónsins.
Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.
UPPLÝSINGAR UM SELJANDA
Seljandi er Herdís Hermannsdóttir (Litla ljónið barnafataverslun) kt.191188-2929, Krabbastíg 1B, 600 Akureyri.
VERÐ Á VÖRU OG SENDINGARKOSTNAÐUR
Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Litla ljónið áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Litla ljónið ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Litla ljóninu til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Sé valið að sækja í Krabbastíg 1B en óskað síðar eftir heimsendingu er í öllum tilfellum kostnaður sendingar greiddur af viðtakanda.
SKILAFRESTUR
Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í söluhæfu ástandi og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd að fullu innan 30 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar, nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
GÖLLUÐ VARA
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum bent á að hafa samband við okkur með því að senda póst á litlaljonid@litlaljonid.is innan 14 daga frá kaupum. Kaupandi þarf að geta fært sönnur fyrir viðskiptunum. Einfaldasta leiðin til þess er að sýna kassakvittun eða pöntunarstaðfestingu. Þetta á einnig við um gjafir.
GREIÐSLUMÁTAR
Hægt er að greiða í gegnum örugga greiðslugátt Teya sem og millifærslur.
EIGNARRÉTTARFYRIRVARI
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.
LAGAÁKVÆÐI
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.
HÖFUNDARRÉTTUR
Allt efni á www.litlaljonid.is; texti, grafík, lógó og myndir, eru eign Litla ljónsins.
VARNARÞING
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. Skilmálar þessir gilda frá 22. september 2025.
Ef þú þarft nánari upplýsingar, sendu okkur þá fyrirspurn á litlaljonid@litlaljonid.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.