Tilgangur stefnunnar er að upplýsa viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig þær eru meðhöndlaðar. Varðveittar persónuupplýsingar eru einungis notaðar í þeim tilgangi sem þeim var ætlað og samþykki liggur fyrir. Vinnsla persónuupplýsinga er í samræmi við lög, reglur og uppgefna skilmála.

 

ÁBYRGÐ

Litla ljónið er ábyrgðaraðili fyrir þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustu verslunarinnar.

SÖFNUN OG MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA

Litla ljónið vinnur eingöngu persónuupplýsingar að því marki sem lög heimila. Aldrei er safnað meiri upplýsingum en upplýst samþykki liggur fyrir og þörf er á vegna starfseminnar.

 

MIÐLUN UPPLÝSINGA TIL ÞRIÐJA AÐILA

Litla ljónið áskilur sér rétt til að afhenda upplýsingar þriðja aðila ef:

  • Fyrirtækinu ber skylda til þess samkvæmt lögum.
  • Samþykkt með undirskrift eiganda liggur fyrir.
  • Í tengslum við tæknilega þætti til að tryggja þjónustu við viðskiptavini eða góða viðskiptahætti s.s. við kortafyrirtæki vegna vandkvæða þar um. Litla ljónið gerir kröfu á þá aðila að þeir viðhafi fullan trúnað
  • Litla ljónið notar Shopify vefumsjónarkerfið og Shopify hefur sett sér og starfar eftir persónuverndarstefnu sem hjálpar okkur að uppfylla persónuverndarlög

 

ÖRYGGI PERSÓNUUPPLÝSINGA

Rekstur Litla ljónsins er einfaldur en við gerum okkar besta til að  viðhafa viðeigandi öryggisráðstafanir í því skyni að hindra að persónuupplýsingar glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi. Aðgangur að upplýsingum er takmarkaður við þá aðila sem nauðsyn krefur.

Ef upp kemur öryggisbrestur sem hefur áhrif á persónuupplýsingar munum við tilkynna slíkt til Persónuverndar og eftir atvikum til viðkomandi persónu eftir því sem lög mæla fyrir.

Teljir þú að samskipti þín við okkur séu ekki örugg, biðjum við þið um að láta okkur umsvifalaust vita um vandamálið með því að senda póst á netfangið litlaljonid@litlaljonid.is

Persónuupplýsingar eru geymdar aðeins svo lengi sem nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Geymslutími slíkra persónuupplýsinga fer eftir eðli upplýsinganna.

 

Litla ljónið áskilur sér rétt á að breyta persónuverndarstefnu sinni án fyrirvara.